Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan

Skráning orlofs í dagbækur og sjálfsvörun tölvupósts

Starfsmenn þurfa að skrá orlof sitt í dagbækur þegar tímabil orlofstöku liggur fyrir og stilla á sjálfssvörun (out of office) í tölvupósti þann tíma sem starfsmaður er í orlofi og því fjarverandi. Teknar hafa verið saman leiðbeiningar um það hvernig orlof er skráð í dagbækur og stillt er á sjálfssvörun tölvupósts - þær leiðbeiningar er að finna í gæðahandbók skjalasafns í ONE-kerfinu. Einnig er hægt að nálgast leiðbeiningar þess efnis í starfsmannahandbók með því að smella HÉR.
Lesa fréttina Skráning orlofs í dagbækur og sjálfsvörun tölvupósts
Jónsmessuhátíð á Akureyri

Jónsmessuhátíð á Akureyri

Jónsmessuhátíð á Akureyri er 24 tíma hátíð sem hefst kl. 12 á föstudag og stendur til klukkan 12 á laugardag. Á dagskránni eru 25 viðburðir út um allan bæ og fjölbreytnin er í fyrirrúmi.
Lesa fréttina Jónsmessuhátíð á Akureyri

Myndræn framsetning talnaefnis

Vakin er athygli á frétt um myndræna framsetningu talnaefnis á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar segir að Hag- og upplýsingasvið sambandsins hefur verið að þróa aðferðir við birtingu gagna og noti hugbúnaðinn Power BI frá Microsoft til að birta gögn myndrænt með gagnvirkum hætti og að þær framsetningar séu nú aðgengilegar á vef sambandsins
Lesa fréttina Myndræn framsetning talnaefnis
Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna

Vinnustaðarkeppni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna fór fram í maí líkt og áður. Fjöldi starfsstöðva innan Akureyrarbæjar skráði sig í til leiks og kepptist við að hjóla meira en náunginn. Keppnin skiptist í nokkra flokka eftir fjölda starfsmanna. Heilsuráð Akureyrarbæjar veitir stofnunum bæjarins viðurkenningar fyrir góðan árangur í vinnustaðarkeppninni. Í ár var keppnin mikil og greinilegt að margir eru farnir að grípa í hjólið í maí. Útkoman var að fleiri hljóta nú viðurkenningu Heilsuráðs en áður enda fleiri orðnir duglegir en áður J Í ár voru það sjö stofnanir sem stóðu sig framúrskarandi vel. Heilsuráð fór á stúfana í síðustu viku og afhenti viðurkenningarnar til hlutaðeigandi aðila, sem voru Naustaskóli, Síðuskóli, Lundarskóli, Giljaskóli, Ráðhús Akureyrar, Amtsbókasafnið/Héraðsskjalasafnið og Heilsuleikskólinn Krógaból.
Lesa fréttina Hjólað í vinnuna
ARTIK NORAK - úrslit

ARTIK NORAK - úrslit

Fimmtudaginn 15. júní fór fram hið árlega ARTIC NORAK starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku í fimmta skiptið og nú í fyrsta skipti fór mótið fram í júní. Um 30 golfarar voru skráðir til leiks í mótinu sem fór fram í blíðskapar veðri á Golfvellinum að Jaðri. Í ár var líka haldin „drive-keppni“ og skotkeppni. Keppnin í golfmótinu var ótrúlega jöfn og fór svo að 3 efstu liðin fóru holurnar 9 á jafnmörgum höggum. Þurfti því að beita reiknireglum golfíþróttarinnar til að skera úr um sigurvegara. Í fyrsta sæti í golfmótinu urðu
Lesa fréttina ARTIK NORAK - úrslit
NORAK starfsmannagolfmót

NORAK starfsmannagolfmót

Ennþá er hægt að skrá sig í hið árlega NORAK starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku sem verður haldið fimmtudaginn 15. júní kl. 18:00. SKRÁNINGU LÝKUR Í DAG ÞRIÐJUDAG 13. JÚNÍ KL. 12:00. Nánari upplýsingar: Keppnisskilmálar - NORAK 2017 og Auglýsing - NORAK 2017.
Lesa fréttina NORAK starfsmannagolfmót

Kynningarfundur um lýðheilsuvísa 2017

Kynningarfundur um lýðheilsuvísa 2017 verður í dag, mánudaginn 12. júní 2017, kl. 13:00–16:00 í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Embætti landlæknis stendur fyrir kynningarfundinum og er hann opinn öllum sem vilja kynna sér málið - allar nánari upplýsingar má finna á vef landlæknis með því að smella HÉR.
Lesa fréttina Kynningarfundur um lýðheilsuvísa 2017

Skráning orlofs í dagbækur og sjálfssvörun tölvupósts

Starfsmenn þurfa að skrá orlof sitt í dagbækur þegar tímabil orlofstöku liggur fyrir og stilla á sjálfssvörun (out of office) í tölvupósti þann tíma sem starfsmaður er í orlofi og því fjarverandi. Teknar hafa verið saman leiðbeiningar um það hvernig orlof er skráð í dagbækur og stillt er á sjálfssvörun tölvupósts - þær leiðbeiningar er að finna í gæðahandbók skjalasafns í ONE-kerfinu. Einnig er hægt að nálgast leiðbeiningar þess efnis í starfsmannahandbók með því að smella HÉR.
Lesa fréttina Skráning orlofs í dagbækur og sjálfssvörun tölvupósts
NORAK starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar

NORAK starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar

Vakin er athygli á því að hið árlega NORAK starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku verður haldið í næstu viku fimmtudaginn 15. Júní kl. 18:00. Fyrir frekari upplýsingar má skoða skjölin: Keppnisskilmálar - NORAK 2017 og NORAK 2017.
Lesa fréttina NORAK starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar
Stefnumótun íþróttamála

Stefnumótun íþróttamála

Vakin er athygli á stefnumótunarfundi varðandi íþróttamál á Akureyri. Markmið fundarins er að laða fram skoðanir og sýn íbúa á þeim þáttum sem skipta máli í íþróttum á Akureyri. Fundurinn verður haldinn í salnum Hömrum í Hofi kl. 17:00-19:00. Auglýsingu vegna fundarins má finna HÉR.
Lesa fréttina Stefnumótun íþróttamála
Heilsupistill Heilsuverndar

Heilsupistill Heilsuverndar

Vakin er athygli á heilsupistli Heilsuverndar sem ber yfirskriftina Hreyfing fyrir heilsuna - þar er í stuttu máli fjallað um gildi daglegrar hreyfingar og ávinning þess að stunda reglubundna hreyfingu. Fyrir áhugasama er hægt að nálgast pistilinn HÉR.
Lesa fréttina Heilsupistill Heilsuverndar