Starfslokanámskeið dagana 5. mars, 7. mars og 12. mars.

Þriðjudaginn 5. mars hefst starfslokanámskeið á vegum Akureyrarbæjar. Markmið námskeiðsins er að hjálpa starfsfólki að undirbúa starfslok vegna aldurs, aðlaga sig breyttu lífsmynstri og stuðla að innihaldsríku lífi að starfi loknu.

Markhópurinn er starfsfólk eldra en 60 ára og er námskeiðið þátttakendum að kostnaðarlausu.

Samstarfsaðilar: Akureyrarbær, Sjúkrahúsið á Akureyri, Norðurorka, Kjölur og Eining Iðja.

Staðsetning: Lionssalur á 4. hæð í Skipagötu 14.

Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:

Þriðjudagur 5. mars

16.30 Inngangur um námskeiðið: Ingunn Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri starfsþróunar hjá Akureyrarbæ.

16.35Lífeyrisþegar og Almannatryggingar: Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins.

17.15 Kaffi

17.30 Réttindi hjá stéttarfélögum eftir að starfi lýkur: Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju.

17.45 Punkturinn: Bergljót Jónasdóttir, forstöðumaður tómstundamála í Rósenborg.

18.00 Andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna: Elín Díanna Gunnarsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri.

Fimmtudagur 7. mars

16.30 Kynning á sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins á Akureyri: Hörður Ólafsson sjálfboðaliði og fyrrverandi skólastjóri Lundarskóla.

16.50 Kynning á starfi Félags eldri borgara: Jóhannes Sigvaldason formaður Félags eldri borgara á Akureyri.

17.15 Kaffi

17.30 Forvarnir: Meredith Cricco öldrunarlæknir.

18.00 Félagsstarf aldraðra á vegum Akureyrarbæjar: Anna Marit Níelsdóttir félagsráðgjafi á búsetudeild Akureyrarbæjar

Þriðjudagur 12. mars

16.30 Lífeyrismálin:

17.45 Kaffi

18:00 Áhrif markvissrar þjálfunar á heilsufar: Þóra Guðný Baldursdóttir Sjúkraþjálfari á Bjargi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan