Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands (FÍ)

Heilsuráð Akureyrarbæjar vill vekja athygli á Lýðheilsugöngum Ferðafélags Íslands (FÍ) í september.

Í tilkynningu frá FÍ segir: Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands (FÍ) verða á öllu landinu nú í september og eru einn af hápunktunum í glæsilegri afmælisdagskrá FÍ en félagið fagnar 90 ára afmæli á árinu. Göngurnar munu fara fram alla miðvikudaga í septembermánuði kl. 18:00. Þetta eru fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

Á Akureyri verður farið frá skrifstofu Ferðafélags Akureyrar, Strandgötu 23, alla miðvikudaga kl. 18:00 í september (6/9, 13/9, 20/9 og 27/9). Þátttaka er gjaldfrjáls og er skráning á heimasíðu verkefnisins: http://lydheilsa.fi.is/

Nánari upplýsingar má finna með því að smella HÉR og á ofangreindri vefsíðu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan