- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Vegna breyttra öryggisreglna um lykilorð þurfa allir notendur starfsmanna- og íbúavefsins www.eg.akureyri.is nú að sækja um nýtt lykilorð er þeir skrá sig inn á vefinn.
Nýtt lykilorð er sent í heimabanka viðkomandi. Ef viðkomandi er ekki með heimabanka er hægt að sækja lykilorð í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar í Ráðhúsinu að Geislagötu 9.
Við fyrstu innskráningu með nýúthlutuðu lykilorði þarf að breyta því þannig að það uppfylli öryggiskröfur sem eru að lágmarki 8 stafir og þarf að innihalda einn hástaf, einn lágstaf og einn tölustaf.
Hægt er að fá aðstoð með því að koma í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar að Geislagötu 9, hringja í síma 4601000 eða senda tölvupóst á netfangið lykilord@akureyri.is