- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Núna eru þær tvær vikur liðnar sem ekki þurfti að panta tíma í bólusetningu gegn árlegri inflúensu. Ennþá er þó hægt að fá bólusetningu á heilsugæslustöðinni en nú þarf að hringja og panta tíma í síma 460 4600. Hjúkrunarfræðingar munu bólusetja á 3. hæðinni milli kl. 12:40 til 13:00.
Mælt er með bólusetningu fyrir alla 60 ára og eldri og aðra sem haldnir eru langvinnum sjúkdómum. Einnig er mælt með bólusetningu á 10 ára fresti gegn lungnabólgubakteríum (pneumococcum) fyrir einstaklinga í áhættuhópi.
Fyrirtæki sem óska eftir bólusetningu fyrir starfsmenn sína geta áfram sent lista á HAK en núna þurfa starfsmenn að panta sér tíma áður en þeir mæta í bólusetninguna. Nafnalista fyrir fyrirtæki má nálgast hér. Hægt er að senda starfsmannalista á netfang: hak@hak.ak.is eða faxa í númer: 460 4667.