- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Starfsfólk Ráðhússins hélt Bleika daginn hátíðlegan og klæddust margir bleikum flíkum í tilefni hans. Veitt voru verðlaun fyrir bleikasta starfsmanninn en hún Inga Hrönn Einarsdóttir starfsmaður á Fjársýslusviði mætti í bleiku frá toppi til táar og vann sér inn kassa af Prins Polo. Það var glatt á hjalla og bleiki liturinn í fyrirrúmi í Ráðhúsinu í dag.
Starfsfólk Amtsbókasafnsins puntaði sig bleiku í tilefni dagsins - þau líta vel út í bleiku.
Kaffistofan í Síðuseli var huggulega skreytt og fallega bleik.
Í Frístund í Síðuskóla var boðið upp á bleik-hjúpaðar saltkringlur.
Ritstjórn starfsmannahandbókar hvetur vinnustaði Akureyrarbæjar til þess að senda inn bleikar myndir til birtingar í handbókinni. Myndir sendist á netfangið starfsmannahandbok@akureyri.is