Vinnuskóli Akureyrar

Nú styttist í að Vinnuskóli Akureyrar hefji störf. Búið er að opna fyrir umsóknir í Vinnuskólann á heimasíðu Akureyrarbæjar, http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/vinnustadurinn/storf-i-bodi og stendur umsóknartímabilið til og með 27. apríl nk.

Í Vinnuskólanum starfa 14-16 ára unglingar. 14 og 15 ára unglingar eru í vinnuhópum sem starfa um bæinn ásamt einum hóp í Hrísey. Hóparnir hafa aðstöðu í grunnskólum bæjarins fyrir verkfæri. Vinna 16 ára unglinga fer fram hjá stofnunum og félögum Akureyrar og felst að mestu í gróðurumhirðu.

Nánari upplýsingar um starfsemi Vinnuskólans er að finna hér og á heimasíðu skólans: http://vinnuskoli.akureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan