Vinnuskóli 16 ára byrjar 10. júní

Starfstímabilið hjá vinnuskólanum fyrir 16 ára unglinga er 6 vikur og stendur frá 10. júní til 26. júlí. Vinnuskólinn er lokaður vikuna 8. til 12. júlí. Unnir eru 6 tímar á dag, fjóra daga vikunnar. Vinnuskólinn hefur þann háttinn á í ár að 16 ára unglingar mæta fyrstu þrjá dagana á fræðsludaga í Rósenborg en sá tími er inni í vinnutíma sumarsins sem er 144 klst. Mæta skal stundvíslega kl. 10 í Rósenborg, mánudaginn 10. júní. Það er skyldumæting á þessa daga.

Mjög áríðandi er að hafa samband við skrifstofu vinnuskólans í síma 460 1210 eða 895 5269 eða senda tölvupóst ásumarvinna@akureyri.is ekki síðar en miðvikudaginn 5. júní og láta vita unglingur ætlar ekki að þiggja starfið.

Dreginn er skattur af launum allra starfsmanna sem fæddir eru 1997 eða fyrr. Því þarf að skila skattkorti í síðasta lagi 10. júní í starfsmannaþjónustu Akureyrarkaupstaðar Geislagötu 9 (Ráðhúsið). Ekki er hægt að leiðrétta skatt eftir að laun hafa verið greidd.

Bent er á að vinnuskólinn er reyklaus vinnustaður.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan