Viðbótarlífeyrissparnaður 4% frá 1. júlí 2014

Frá og með 1. júlí 2014 fellur úr gildi tímabundin lögbundin lækkun á heimild launþega til frádráttar iðgjalda til séreignarsparnaðar frá tekjuskattsstofni.   

Launþegum verður því á ný kleift að greiða allt að 4% af launum í viðbótarlífeyrissparnað í stað 2% áður.  Mótframlag launagreiðenda verður eftir sem áður allt að 2% gegn samsvarandi framlagi launþega.  

Iðgjöld þeirra sem voru við lagabreytinguna með í gildi samning um að greiða 4% af launum í viðbótarlífeyrissparnað, hækka sjálfkrafa úr 2% í 4%.

Þeir launþegar sem vilja hækka eða lækka iðgjöld sín þurfa að gera um það nýjan samning.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan