Úthlutun námsleyfa kennara og stjórnenda grunnskóla

Úthlutun námsleyfa kennara og stjórnenda grunnskóla vegna skólaársins 2015-2016 er lokið. Alls bárust Námsleyfasjóði 156 fullgildar umsóknir um námsleyfi skólaárið 2015-2016. Fjármagn til úthlutunar leyfði að veitt yrðu 34 námsleyfi. Aðeins var hægt að verða við um 22% þeirra beiðna sem fyrir lágu og því ljóst að ýmsum fullgildum og áhugaverðum umsóknum varð að hafna.

Eins og fram kom í auglýsingu um úthlutun námsleyfa og samræmist 5. gr. reglna um Námsleyfasjóð var ákveðið að allt að 1/3 leyfa yrði úthlutað sérstaklega vegna náms sem tengist þróun kennsluhátta sem stuðla að fjölbreyttum námsaðferðum í lestri/stærðfræði og kennslu nemenda af erlendum uppruna. Var 11 leyfum úthlutað til slíkra verkefna. Námsleyfum var skipt á milli landshluta með hliðsjón af fjölda starfandi kennara og stjórnenda eftir landshlutum.

Tilkynning um niðurstöðu stjórnar Námsleyfasjóðs hefur verið send öllum umsækjendum bréfleiðis og ætti hún að berast þeim á næstu dögum. Hafi niðurstaðan ekki borist innan tveggja vikna er umsækjendum bent á að hafa samband við Klöru E. Finnbogadóttur.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan