- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Á starfsmannavefnum www.eg.akureyri.is getur starfsfólk Akureyrarbæjar skoðað orlofsstöðu sína. Staða orlofs er samkvæmt skráningu á síðasta launaseðli. Þess skal þó getið að starfsfólk sem vinnur af sér sumarið s.s. starfsfólk í grunnskólum fær ekki birta orlofsstöðu.
Ef starfsmenn hafa gegnt fleiri en einu starfi hjá Akureyrarbæ þarf að smella á stöðuheiti sem birtist fyrir aftan nafn viðkomandi efst á vefnum. Þá kemur upp listi yfir öll stöðuheiti sem viðkomandi hefur verið skráður á og hægt er að velja þá stöðu sem skoða skal upplýsingar fyrir.
Til þess að skoða stöðu orlofs er smellt á Laun og aðrar upplýsingar og síðan á Orlof.