- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Akureyrarbær auglýsir eftir umsóknum um TV einingar vegna verkefna og hæfni.
Vakin er athygli á því að kjarasamninganefnd hefur gert breytingar á reglum um TV einingar og umsókna- og umsagnarformum. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar vel og nota núgildandi form fyrir umsóknir og umsagnir.
Í kjarasamningum sambands íslenskra sveitarfélaga við aðildarfélög BHM , Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og KÍ vegna Félags leikskólakennara er ákvæði um að heimilt sé að greiða launaviðbætur á sérstökum forsendum (svokölluð TV laun) vegna verkefna og hæfni annarsvegar og vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna hinsvegar.
Umækjendur þurfa að skila umsóknum til embættismanna fyrir 17. febrúar nk.
Umsóknir ásamt umsögnum embættismanna eiga að berast til Starfsmannaþjónustu fyrir 1. mars nk.