- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Umboðsmaður skuldara opnar útibú á Akureyri mánudaginn 6. febrúar nk. Útibúið er staðsett á Glerárgötu 26, 1.hæð og opið verður alla virka daga frá kl. 9.00 til 15.00.
Útibúið á Akureyri er annað útibú embættisins, en í desember 2010 opnaði umboðsmaður skuldara útibú í Reykjanesbæ. Líkt og í Reykjanesbæ munu tveir ráðgjafar starfa á Akureyri, þær Harpa Halldórsdóttir viðskiptafræðingur og Heiðrún Ósk Ólafsdóttir lögfræðingur.
Hægt er að panta viðtalstíma hjá ráðgjafa í síma 512-6600.
Það er von umboðsmanns skuldara að embættið muni eiga gott samstarf við aðila á Akureyri við að aðstoða einstaklinga í greiðsluerfiðleikum.