- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Á 150 ára afmæli Akureyrarkaupstaðar í fyrra var ákveðið að heiðra sérstaklega starfsfólk sem þá hafði unnið hjá bænum í 40 ár eða meira.
Ætlunin er að gera þetta að árlegum viðburði og á afmæli bæjarins í síðustu viku, 29. ágúst, var sex einstaklingum boðið til kaffisamsætis með bæjarstjórn og yfirmönnum sínum í bæjarstjórnarsalnum í Ráðhúsinu. Þessum traustu starfsmönnum var færð bókargjöf og blómvöndur.
Á myndinni eru talið frá vinstri: Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, Markús Hávarðarson úr Lundarskóla, Samúel Jóhannsson frá íþróttamiðstöð Glerárskóla, Hrafnhildur Helgadóttir frá Hæfingarstöðinni Skógarlundi, Jón Björn H Arason frá framkvæmdamiðstöð bæjarins, Ragna Kristjánsdóttir úr fjármálaþjónustu, Eiður Þorsteinsson úr fjármálaþjónustu og Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar.