Tilboð til starfsmanna - Af fingrum fram í Hofi 11.október

Af fingrum fram - Björgvin Halldórsson og Jón Ólafsson
11. október kl. 20:30

Þessi spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar hefur gengið fyrir fullu húsi í Salnum síðastliðna þrjá vetur og nú gefst Norðanmönnum tækifæri til að kynna sér herlegheitin.

Sjálfur Björgvin Halldórsson er gestur Jóns þetta kvöldið en hann hefur verið einn okkar fremsti söngvari um árabil. Hér munu kraftballöður og kómískar sögur verða altumlykjandi því gestgjafinn kann manna best að ná mönnum á flug. Með þeim verða Jón Elvar Hafsteinsson á gítar og Friðrik Sturluson á bassa.           

Boðið er upp á sérstök kjör til starfsmannfélaga og hópa á tónleikana, 600 kr afsláttur af almennu miðaverði sem er 3.900 kr.

Nánari upplýsingar og bókanir í miðasölu Hofs s. 450 1000 og midasala@menningarhus.is.

 

 

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan