Tilboð fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar á Homo Erectus

Pörupiltar sýna Homo Erectus fyrir fullorðna í Hofi þann 6. nóvember kl 20.00.

Pörupiltar samanstanda af þremur leikkonum sem leika karla, svokallað drag... þær/þeir hófu göngu sína árið 2006 með dragkeppni og hafa verið iðnar við kolann síðan. María Pálsdóttir, Alexía Björg Jóhannesdóttir og Sólveg Guðmundsdóttir.


Homo Erectus er frábær skemmtun fyrir bæði kynin. Þeir kumpánar eru óborganlegir, þeir leika á allan tilfinningaskalann og þeirra uppáhaldsumræðuefni er konur. Þeir munu ræða opinskátt um konur, vandamál þeirra, samskipti kynjanna og deila með áhorfendum heimspekilegum vangaveltum sínum um lífið og tilveruna.

Starfsfólki Akureyrabæjar býðst að koma og sjá sýninguna og fá miðann á kr 2000 í stað 2500. Sem þykir ansi gott í afþreyingarbransanum.

Tekið skal fram í miðasölunni að um sé að ræða hóptilboð fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan