Tilboð fyrir starfsfólk Akureyararbæjar-SÖNGKONUR STRÍÐSÁRANNA

SÖNGKONUR STRÍÐSÁRANNA

Kristjana Skúladóttir leikkona segir frá og flytur tónlist nokkurra helstu söngkvenna styrjaldaráranna. Stríðsárarómantík og einstakar frásagnir af þessum umbrotatímum.

Tónleikarnir hafa verið fluttir að undanförnu í hinum ýmsu tónleikasölum landsins við sérlega góðar  Á þeim syngur Kristjana dægurlög sem voru vinsæl í síðari heimsstyrjöldinni og segir frá afrekum nokkurra helstu söngkvenna þess tíma, svo sem Marlene Dietrich, Edith Piaf, Hallgerðar Bjarnadóttur og flr.

Hér er á ferðinni meira en hefðbundnir tónleikar því frásagnir Kristjönu gefa tónleikunum dýpt og gerir upplifun áhorfenda sterkari þegar leikkonan leiðir þá aftur til fortíðar.

Flutningurinn er vandaður og einlægur en jafnframt einstaklega kraftmikill. Með í för er tríó, skipað einhverjum fremstu djasstónlistarmönnum landsins. Þetta eru þeir Vignir Þór Stefánsson píanóleikari, Gunnar Hrafnsson bassaleikari og Matthías Hemstock trommuleikari.

Miðaverð 3500 en sérstakt tilboð fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar er 2990. Miðasölusími er 450 1000.

Sjá einnig hér: https://songkonur.wordpress.com/

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan