Tilboð á leiksýninguna: Ég var einu sinni frægur

Silfurtunglið býður vinnustöðum Akureyrarbæjar hópafslátt á sýninguna: Ég var einu sinni frægur. Og býður miðann á 2000 krónur fyrir stóra hópa.

Stórleikararnir Þráinn Karlsson, Gestur Einar og Alli Bergdal leika sig sjálfa; gamla bitra geðilla leikara sem halda að þeir séu virtir, dáðir og sívinsælir.

Sýningin gerist á Kanarí og fjallar um ferð eldri borgara frá Akureyri til Kanarí sem fer algjörlega úr böndunum.

Leikararnir nota sögur úr eigin reynslu, Gestur Einar þolir ekki Gogga úr Stellu í Orlofi, Alli Bergdal þolir ekki Skralla trúð og Þráinn Karlsson þolir ekki þegar fólk segir við hann; mikið líturðu vel út!

Í sýninguna fléttast leikhústónlist úr þeim verkum sem hafa staðið upp úr á 50 ára leiklistarferli.
Skemmtunin er 70 mínútur að lengd, setið er til borðs og barinn er opinn. Sýningin er því tilvalin fyrir vinnuhópa, vinahópa, saumaklúbba og stórfjölskyldur og sem sprenghlægilegur fordrykkur fyrir jólahlaðborð. Eða bara fyrir fólkið af götinni sem vill koma og skemmta sér.

"nostalgía fyrir alla sanna Akureyringa"!

Leikstjóri: Jón Gunnar
Leikarar: Gestur Einar Jónasson, Þráinn Karlsson, Aðalsteinn Bergdal

Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnar, leikstjóri í síma 8975624 eða netfangi leikstjori@gmail.com

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan