Til hamingju Síðuskóli, Krógaból og Amtsbókasafn/Héraðsskjalasafn!

Heilsuráð Akureyrarbæjar veitti nýlega þremur stofnunum bæjarins viðurkenningar fyrir þátttöku í Hjólað í vinnuna sem fór fram 3. - 23. maí.

Stofnanirnar sem hlutu viðurkenningu áttu það allar sameiginlegt að skora yfir 4,5 í hlutfalli daga (fjöldi starfsmanna/fjölda skráðra daga) sem og á lista yfir 10 efstu lið í sínum flokki á landsvísu.

Viðurkenningu heilsuráðs 2023 hlutu Síðuskóli, Heilsuleikskólinn Krógaból og Amtsbókasafnið/Héraðsskjalasafnið. Glöggir lesendur starfsmannavefsins taka eftir því að þetta eru sömu þrjár stofnanirnar og hlutu líka viðurkenningu í fyrra.

Síðuskóli

Amtsbókasafn og Héraðsskjalasafn

Krógaból

Flottur árangur hjá frábærum starfsmönnum og við þetta má bæta að Síðuskóli hafnaði í öðru sæti í sínum flokki á landsvísu og Amtsbókasafnið/Héraðsskjalasafnið hafnaði í þriðja sæti í sínum flokki á landsvísu og að launum hlutu stofnanirnar viðurkenningu frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ)! Súper vel gert Síðuskóla og Amtsbókasafninu/Héraðsskjalasafninu.

Heilsuráð óskar starfsmönnum ofantaldra stofnana til hamingju með góðan árangur í Hjólað í vinnuna 2023 sem og þakkar öllum öðrum sem tóku þátt fyrir þeirra framlag. Allir þátttakendur eru sigurvegarar í þessari heilsueflingu þar sem bætt heilsa eru hin æðstu verðlaun.

Takk til þátttakenda fyrir að vera öðrum til fyrirmyndar og hvatningar til að halda áfram að hlúa að hreyfingu og heilsueflingu inn í sumarið og að eilífu.

Meðfylgjandi eru myndir af fulltrúum þessara fyrirmyndarhjólara.

Nánar er hægt að skoða úrslit Hjólað í vinnuna á heimasíðunni https://hjoladivinnuna.is/stadan/allir-vinnustadir-og-tolfraedi/

 

Góðar stundir og betra sumar!

Heilsuráð Akureyrarbæjar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan