Tíðindi af vettvangi sambandsins - fréttabréf

Á síðasta ári gaf Samband íslenskra sveitarfélaga út í tilraunarskyni rafrænt fréttabréf – Tíðindi af vettvangi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Alls komu út 11 tölublöð á árinu 2013 og samkvæmt könnun sem gerð var undir lok síðasta árs var almenn ánægja með þessa tilraunaútgáfu hjá þeim sem svöruðu könnuninni.

Því hefur verið ákveðið að halda útgáfu Tíðindanna áfram og þróa þau að efni og framsetningu. Það verður vel þegið að lesendur láti í sér heyra og sendi ábendingar um efni og það sem betur má fara á netfangið samband@samband.is.

Hér má nálgast fréttabréfið.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan