Þakkir vegna Afmælisvöku Akureyrar

Ágæta samstarfsfólk.

Afmælisvöku Akureyrar er nú lokið og óhætt að segja að hún hafi gengið vel fyrir sig og verið okkur öllum til mikils sóma. Það er ekki sjálfsagt mál að svona umfangsmikil hátíð gangi stórslysalaust fyrir sig en mikill og góður undirbúningur ásamt jákvæðu og góðu viðmóti allra sem komu að undirbúningi og framkvæmd afmælisvökunnar skiptir þar sköpum.

Mig langar að nota tækifærið að þakka ykkur öllum sem með einum eða öðrum hætti komuð að undirbúningi og framkvæmd afmælisvökunnar. Án ykkar hefði þetta ekki getað orðið svona glæsileg hátíð og heppnast svona vel.

Ég er afskaplega stoltur og ánægður að vera hluti af svona samheldnum hópi.

 Með kveðju,

 Eiríkur Björn

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan