Sumarstörf hjá Akureyrarbæ 2014

Umsóknartímabil sumarstarfa hjá Akureyrarbæ er hafið. Margvísleg störf eru í boði, svo sem á sambýlum, í öldrunarþjónustu, íþróttamannvirkjum, skrifstofustörf o.fl.

Allir umsækjendur þurfa að sækja um rafrænt og er öllum umsækjendum svarað. Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins.

Leiðbeiningar um hvernig sótt er um starf er að finna hér.

Bæði konur og karlar eru hvött til þess að sækja um störf hjá Akureyrarbæ og skoða með opnum huga þau störf sem í boði eru: Því ekki að komast út úr hefðbundnum kynhlutverkum og prófa eitthvað nýtt?

Stelpur/konur: Því ekki að sækja um störf t.d. í gatnagerð eða við garðslátt? 
Strákar/karlar: Hvernig væri að sækja um umönnunarstörf t.d. á sambýlum og á dvalarheimili aldraðra?

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan