Nú er rétti tíminn til að huga að því hvernig þú ætlar að nýta vorið.
Í boði eru fjölbreyttar námsleiðir í samstarfi við framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar víðsvegar um landið. Þetta er starfstengt nám fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar sem annað hvort starfa á viðkomandi sviði eða hafa áhuga á því.
Skráningafrestur í flestar þessar námsleiðir er núna í desember og því hvetjum við þig til að kynnar þér málið sem fyrst.
Námið er yfirleitt í boði bæði í fjar- og staðnámi en það er þó háð fjölda þátttakenda í hvert skipti.
Nánari upplýsingar um námið sem er í boði er að finna HÉR