- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Í gær, miðvikudaginn 28. janúar, var send út spurningakönnun til allra starfsmanna Akureyrarbæjar sem eru í meira en 30% starfshlutfalli. Könnunin var send á netföng starfsmanna en þeir sem hafa ekki netföng munu eiga þess kost að svara henni með öðrum hætti.
Í könnuninni er spurt um líðan, heilsu og starfstengd viðhorf starfsfólks sveitarfélagsins eins og undanfarin ár en í þetta skipti verður könnunin heldur styttri. Starfsfólk er vinsamlega beðið um að svara spurningalistanum eins ítarlega og það treystir sér til. Það tekur u.þ.b. 10-15 mínútur.
Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar sem gagnast til að stuðla að bættu starfsumhverfi og uppfylla þannig markmið í mannauðsstefnu og jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar.
Fyrri kannanir hafa m.a. leitt til aðgerða eins og fræðslu um vellíðan á vinnustað, viðbragða við einelti á vinnustöðum, samþykkt hefur verið Velferðarstefna, stofnað Heilsuráð Akureyrarbæjar og heilsueflingarnefndir á flestum vinnustöðum.
Könnunin er unnin í samstarfi við Hjördísi Sigursteinsdóttur aðjúnkt við Háskólann á Akureyri og mun hún sjá um að safna gögnum og vinna úr þeim.
Hafi starfsfólk spurningar eða lendi í vandræðum með að nálgast könnunina skal hafa samband við viðkomandi yfirmann eða Ölmu Rún Ólafsdóttur verkefnastjóra á starfsmannaþjónustu (sími 4601074/8691805, tölvupóstur almarun@akureyri.is) eða Hjördísi Sigursteinsdóttur aðjúnkt við HA með tölvupósti á netfangið hjordis@unak.is.
Starfsfólk er hvatt til þess að svara spurningalistanum og leggja þannig vinnustaðnum lið og um leið stuðla að bættu starfsumhverfi fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar.