Starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku 2024 - NORAK

Hið árlega starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku - NORAK fer fram þriðjudaginn 11. júní nk

Opnað hefur verið fyrir skráningu => smellið hér til að skrá á mótið

Það má endilega boða boðskapinn og dreifa þessu áfram innan vinnustaða

Líkt og undanfarin ellefu fyrri mót er þarf ekki sérstaka golffærni til að taka þátt í mótinu, það verður skipt í lið þar sem t.d. einn góður, annar minna góður og einn aðeins minna en það góður eru saman í liði. Þannig skapast góð og létt stemmning innan hvers liðs og allir finna sinn golfbolta við hæfi.

Búið er að hafa samband við Veðurguðina, Ingó kemst ekki en góða veðrið mætir og verður á staðnum allan þriðjudaginn.

NORAK 2024

GOLFMÓT STARFSMANNA AKUREYRARBÆJAR & NORÐURORKU

  • ÞRIÐJUDAGINN 11. JÚNÍ 2024 Á GOLFVELLI GA VIÐ JAÐAR. MÆTING KL. 16:30
  • 9 HOLU 3/4 MANNA TEXAS SCRAMBLE MÓT (Holur 10.-18.)
  • ALLIR RÆST ÚT Á SAMA TÍMA KL. 17:00

  • FULLTRÚAR GOLFKLÚBBSINS RAÐA Í LIÐ
  • EINU SKILYRÐIN FYRIR ÞÁTTTÖKU ERU TVÖ;
    • HVER GOLFARI ÞARF AÐ HAFA GOLFSETT
    • VERA STARFSMAÐUR AKUREYRARBÆJAR EÐA NORÐURORKU
  • VERÐLAUN OG VIÐURKENNINGAR
    • FARANDBIKAR FYRIR 1. SÆTIÐ
    • VERÐLAUNAPENINGUR FYRIR FYRSTU ÞRJÚ SÆTIN
    • NÆST HOLU Á 11., 14., & 18. BRAUT (NÁNDARVERÐLAUN)
    • LENGSTA TEIGHÖGGIÐ Á 15. BRAUT
    • ÚRDRÁTTARVERÐLAUN
  • SKRÁNING FER FRAM Á ÞESSUM HLEKK
  • SKRÁNINGU LÝKUR MÁNUDAGINN 10. JÚNÍ KL. 14:00.

  • MÓTAFYRIRKOMULAGIÐ HENTAR FJÖLDANUM ÓHÁÐ FÆRNI OG FORGJÖF, Þ.E. EITTHVAÐ FYRIR ALLA!
  • AF GEFNU TILEFNI SKAL MOTTÓ MÓTSINS ÍTREKAÐ: LÁTUM EKKI KAPPIÐ BERA FEGURÐINA OFURLIÐI!

Mbk. Mótsstjórn

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan