Starfslokanámskeið í apríl

Frá starfslokanámskeiði árið 2013
Frá starfslokanámskeiði árið 2013

Dagana 9., 14. og 15. arpíl verður haldið starfslokanámskeið sem er ætlað starfsfólki sem senn lýkur störfum vegna aldurs.

Dagskráin er afar fjölbreytt en meðal umfjöllunarefna eru lífeyris- og tryggingamál, forvarnir hvað varðar heilsu og andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna.  

Markmið námskeiðsins er að hjálpa starfsfólki að undirbúa starfslok vegna aldurs, aðlaga sig breyttu lífsmynstri og stuðla að innihaldsríku lífi að starfi loknu. Markhópurinn er starfsfólk eldra en 60 ára og er námskeiðið þátttakendum að kostnaðarlausu.

Samstarfsaðilar: Akureyrarbær, Sjúkrahúsið á Akureyri, Norðurorka, Kjölur og Eining Iðja.

Staðsetning: Lionssalur á 4. hæð í Skipagötu 14.

Skráning: Hjá Starfsmannaþjónustu í síma 460-1060 eða með tölvupósti almarun@akureyri.is Síðasti skráningardagur er miðvikudagur 1. apríl.

Dagskrá námskeiðsins:

Fimmtudagur 9. apríl

  • 16.30 Inngangur um námskeiðið: Ingunn Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri starfsþróunar hjá Akureyrarbæ.
  • 16.35 Lífeyrisþegar og Almannatryggingar: Margrét Jónsdóttir, deildarstjóri á réttindasviði Tryggingastofnunar ríkisins.
  • 17.30 Kaffi
  • 17.45 Réttindi hjá stéttarfélögum eftir að starfi lýkur: Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar Iðju.
  • 18.00 Andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna: Elín Díanna Gunnarsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri.

Þriðjudagur 14. apríl

  • 16.30 Kynning á sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins á Akureyri: Hörður Ólafsson, sjálfboðaliði og fyrrverandi skólastjóri Lundarskóla.
  • 16.50 Kynning á starfi Félags eldri borgara: Sigurður Hermannsson, formaður Félags eldri borgara á Akureyri.
  • 17.15 Kaffi
  • 17.30 Forvarnir: Meredith Cricco, öldrunarlæknir.
  • 18.00 Punkturinn og félagsstarf aldraðra á vegum Akureyrarbæjar: Bergljót Jónasdóttir forstöðumaður tómstundamála Rósenborg.

Miðvikudagur 15. apríl

  • 16.30 Lífeyrismálin: Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags, Soffía Margrét Sigurðardóttir frá Lífeyrissjóðnum Stapa og Ágústa Gísladóttir frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins.
  • 17.45 Kaffi
  • 18:00 Að hætta að vinna – reynslusaga: Ragnheiður Gestsdóttir fyrrv. menntaskólakennari
Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan