- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Markmið námskeiðsins er að hjálpa starfsfólki að undirbúa starfslok vegna aldurs, aðlaga sig breyttu lífsmynstri og stuðla að innihaldsríku lífi að starfi loknu. Markhópurinn er starfsfólk eldra en 60 ára og er námskeiðið þátttakendum að kostnaðarlausu.
Samstarfsaðilar: Akureyrarbær, Sjúkrahúsið á Akureyri, Norðurorka, Kjölur og Eining Iðja.
Skráning: Hjá starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar í síma 460-1060 eða með tölvupósti almarun@akureyri.is. Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 1. mars.
Staðsetning: Lionssalur á 4. hæð í Skipagötu 14.
16.30 Inngangur um námskeiðið: Ingunn Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri starfsþróunar hjá Akureyrarbæ.
16.35 Lífeyrisþegar og Almannatryggingar: Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins.
17.15 Kaffi
17.30 Réttindi hjá stéttarfélögum eftir að starfi lýkur: Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju.
17.45 Punkturinn: Bergljót Jónasdóttir, forstöðumaður tómstundamála í Rósenborg.
18.00 Andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna: Elín Díanna Gunnarsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri.
16.30 Kynning á sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins á Akureyri: Hörður Ólafsson sjálfboðaliði og fyrrverandi skólastjóri Lundarskóla.
16.50 Kynning á starfi Félags eldri borgara: Jóhannes Sigvaldason formaður Félags eldri borgara á Akureyri.
17.15 Kaffi
17.30 Forvarnir: Meredith Cricco öldrunarlæknir.
18.00 Félagsstarf aldraðra á vegum Akureyrarbæjar: Anna Marit Níelsdóttir félagsráðgjafi á búsetudeild Akureyrarbæjar
16.30 Lífeyrismálin:
17.45 Kaffi
18:00 Áhrif markvissrar þjálfunar á heilsufar: Þóra Guðný Baldursdóttir Sjúkraþjálfari á Bjargi.