- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Miðvikudaginn 6. maí var haldinn starfsdagur fyrir stjórnendur hjá Akureyrarbæ.
Umfjöllunarefni dagsins var samskipti og leiðtogaþjálfun. Á dagskrá voru m.a. reynslusögur stjórnenda, hópavinna, fyrsta kynning á niðurstöðum starfsmannakönnunar og tveir afar áhugaverðir fyrirlestrar um markþjálfun og leiðtogahlutverkið.
Starfsdagar sem þessi eru haldnir tvisvar á ári og eru skipulagðir af starfsmannaþjónustunni í samráði við fulltrúa stjórnenda.