- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Ef óskað er eftir að Akureyrarbær taki tillit til launa frá öðrum við útreikning staðgreiðslu launa þarf að senda beiðni þar um, annað hvort skriflega eða í tölvupósti á viðkomandi launafulltrúa.
Í beiðninni þarf að koma fram nafn og kennitala launaþega, frá hvaða tíma og hvaða launafjárhæð Akureyrarbær á að miða við sem laun á mánuði frá öðrum launagreiðanda við útreikning staðgreiðslu launa hjá Akureyrarbæ.
Athugið að hér er átt við meðaltals heildarlaun frá öðrum launagreiðendum að frádregnu 4% framlagi launþega í lífeyrissjóð og að frádregnu allt að 2% framlagi launþega í séreignarlífeyrissjóð ef um það er að ræða.
Staðgreiðsla launa er reiknuð er reiknuð í þremur þrepum og er útreikningur í hverju þrepi er sem hér segir:
Frá reiknaðri staðgreiðslu dregst síðan persónuafsláttur sem er 46.532 kr. á mánuði árið 2012.
Athugið að ef kemur í ljós við álagningu 2011 vegna tekna ársins 2010 að launþegi hefur vangreitt staðgreiðslu þá er innheimt 2,5% álag við álagningu.
Ef einhverjar spurningar vakna, endilega hafið þá samband við Starfsmannaþjónustu í síma 460 1000 eða björgl@akureyri.is.
Ennig má finna upplýsingar á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is.