Staðgreiðsla 2011 - laun frá öðrum vinnuveitanda

Í mörgum tilvikum eru starfsmenn Akureyrarbæjar launþegar hjá öðrum vinnuveitendum en Akureyrarbæ og þurfa því að passa að tekið sé tillit til þeirra launa við útreikning staðgreiðslu á árinu 2011.

Ef starfsmenn kjósa svo er hægt að taka tillit til launa frá öðrum vinnuveitanda við útreikning launa hjá Akureyrarbæ en að sjálfsögðu geta starfsmenn einnig valið að tilkynna hinum vinnuveitandanum/-endunum um laun hjá Akureyrarbæ.

Ef óskað er eftir að Akureyrarbær taki tillit til launa annars staðar frá við útreikning staðgreiðslu launa þarf að senda beiðni þar um, annað hvort skriflega eða í tölvupósti á viðkomandi launafulltrúa.

Í beiðninni þarf að koma fram nafn og kennitala launaþega, frá hvaða tíma og hvaða launafjárhæð Akureyrarbær á að miða við sem laun á mánuði frá öðrum vinnuveitanda við útreikning staðgreiðslu launa hjá Akureyrarbæ.

Athugið að hér er átt við meðaltals heildarlaun frá öðrum vinnuveitanda/-endum að frádregnu 4% framlagi launþega í lífeyrissjóð og að frádregnu allt að 4% framlagi launþega í séreignarlífeyrissjóð ef um það er að ræða.

Staðgreiðsla launa er reiknuð í þremur þrepum. Útreikningur á hverju þrepi er sem hér segir:

Af fyrstu 209.400 kr (0-209.400 kr.) er reiknuð 37,31% staðgreiðsla.

Af næstu 471.150 kr (200.001 kr. - 471.150 kr.) er reiknuð 40,21% staðgreiðsla.

Af launafjárhæð umfram 680.550 kr. (680.551 - ) er reiknuð 46,21% staðgreiðsla.

Frá reiknaðri staðgreiðslu dregst síðan persónuafsláttur sem er 44.205 kr. á mánuði árið 2011.

Ef einhverjar spurningar vakna, endilega hafið þá samband við Starfsmannaþjónustu í síma 460 1000 eða björgl@akureyri.is.

Nánari upplýsingar má finna á vef ríkisskattstjóra http://www.rsk.is/

 



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan