Skráning er hafin á árshátíð Akureyrarbæjar

Árshátíð Akureyrarbæjar fer fram í íþróttahöllinni, laugardaginn 12. október. Húsið opnar kl. 18:30. 

Skráning er hafin og hér er skráningarhlekkur. https://tix.is/is/buyingflow/tickets/18293/83078/

Miðaverð fyrir maka er 10.000 kr.-

Hljómsveitin Stuðlabandið leikur fyrir dansi, veislustjóri kvöldsins er enginn annar en Siggi Gunnars og Bautinn sér um mat og drykk.

Matseðillinn

Forréttur 18:30

Smáréttir, sushi, snittur og freyðivín

Aðalréttur kl. 20:00

Nautalund, karamellaður rauðlaukur, fondant kartafla, gljáðar gulrætur, brokkólíni og sveppa soðgljái

Eftirréttur

Súkkulaði brownie, hvítsúkkulaði mús, jarðaber og hafra-súkkulaði mulningur

Tilkynningar um frávik frá matseðli sendist á bautinn@bautinn.is, s.s vegna ofnæmis.

Starfsfólk Velferðarsviðs lofar frábæru kvöldi og minnir á þemað:

Glimmer & glans. 

Sjáumst í íþróttahöllinni 12. október!

Skráningu lýkur 4. október

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan