Skatthlutfall og persónuafsláttur 2022

Öllum launagreiðendum er skylt að draga staðgreiðslu opinberra gjalda frá launum og öðrum staðgreiðsluskyldum greiðslum til launamanna og skila í ríkissjóð. Staðgreiðsla samanstendur af tekjuskatti og útsvari og er fyrirframgreiðsla upp í álagningu opinberra gjalda samkvæmt skattframtölum einstaklinga. Tekjuskattur rennur í ríkissjóð og útsvarið til sveitarfélagsins.

Meðalútsvarið er 14,45% og skatthlutfallið 2022 er;
Skattþrep 1: 31,45% af tekjum 0 - 370.482 kr. (þar af 17,00% tekjuskattur)
Skattþrep 2: 37,95% af tekjum 370.483 - 1.040.106 kr. (þar af 23,50% tekjuskattur)
Skattþrep 3: 46,25% af tekjum yfir 1.040.106 kr. (þar af 31,80% tekjuskattur)

Persónuafsláttur er 646.993 kr. á ári, eða 53.916 kr. á mánuði.
Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2022.

Umsóknir um breytingu, nýtingu eða lokun á persónuafslætti eru að finna í Þjónustugátt Akureyrarbæjar.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan