Samstarfsnefnd um símenntun/starfsþróun kennara

Síðastliðið sumar gerðu Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Kennarasamband Íslands, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Háskólinn á Akureyri, Listaháskóli Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga með sér samkomulag eða sérstaka viljayfirlýsingu um samstarf á sviði símenntunar. Stofnuð hefur verið samstarfsnefnd þessara aðila með það að markmiði að vinna að verkefnum á sviði símenntunar og starfsþróunar kennara á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.

Helstu verkefnin verða þessi:

Að samræma og flokka upplýsingar um símenntunartilboð fyrir kennara og koma á laggirnar upplýsingaveitu um framboð símenntunar fyrir kennara.
Að setja fram sameiginlegan skilning aðila á því hvað felst í símenntun/starfsþróun kennara og vinna að því að auðvelda kennurum á mismunandi skólastigum að sækja sömu símenntun/starfsþróun, að sækja sameiginleg námskeið, ráðstefnur og þróunarverkefni.
Vinna við að greiða leið kennara til að nýta sér námsframboð háskólanna samhliða vinnu.
Að ræða þróun samræmdra aðferða við skráningu starfsþróunar.

Verkefnin byggja að verulegu leyti á tillögum nefndar á vegum mennta- og menningarmálaráðherra sem skilaði skýrslu um símenntunarmál í árslok 2010 en sömu aðilar og nú hafa gert með sér samkomulag áttu fulltrúa í þeirri nefnd. Skýrsluna má nálgast á vef sambandsins.

Samstarfsnefndinni til fulltingis er stýrihópur sem í sitja fjórir fulltrúar úr hópi þeirra sem sitja í samstarfsnefndinni og ennfremur hefur verið skipuð fjögurra manna ritstjórn upplýsingaveitu um símenntun.

Samkomulagið er um vinnu að fyrrgreindum málefnum í eitt ár 1.október 2011 - 30. september 2012 og ráðinn hefur verið starfsmaður í 50% starf til að vinna með stýrihópi og samstarfsnefnd. Allir aðilar samkomulagsins leggja fé af mörkum til starfsins.

Nánari upplýsingar gefur starfsmaður samstarfsnefndar, Edda Kjartansdóttir, eddakja@hi.is, sími 525 5983.

Vefur um vinnu nefndarinnar hefur verið opnaður á slóðinni https://skrif.hi.is/samstarfumsimenntun.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan