Rafrænar tímabókanir hjá launafulltrúum

Mynd fyrir athygli :)
Mynd fyrir athygli :)

Opnað hefur verið fyrir rafrænar tímabókanir hjá launafulltrúum Akureyrarbæjar.

Þú getur bókað viðtal á bókunarvefnum hér og er einfalt að nota bæði tölvu og síma til þess að bóka. Hægt er að velja um teams-, síma- eða staðfund í Ráðhúsinu.

Vinsamlegast athugaðu að þessi virkni er nýjung og í almennum prófunum. Við viljum gjarnan fá ábendingar ef þú lendir í vandræðum eða ef eitthvað má betur fara. Slíkar ábendingar má senda í gegnum ábendingagáttina á heimasíðu bæjarins.

Verkefnið er unnið í samstarfi launateymis og þjónustu- og þróunarteymis og er markmiðið að útvíkka það í kjölfarið, þannig að íbúar bæjarins geti áður en langt um líður bókað viðtöl með einföldum hætti hjá starfsfólki á hinum ýmsu sviðum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan