Persónuuppbót greidd út 28. apríl

Akureyrarbær greiðir persónuuppbót til starfsmanna sinna föstudaginn 28. apríl nk. Greitt er hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag. Hafi starfsmaður gegnt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Upphæð persónuuppbótar er 54.350 kr.- miðað við fullt starf á kjarasamningi Einingar-Iðju og hjá þeim sem greiða í Kjöl 53.000 kr-. miðað við full starf svo dæmi séu nefnd.

Athugið að upphæðin er misjöfn eftir kjarasamningum.

Hægt er að skoða launaseðilinn sinn á rafrænu formi inn á island.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan