Nýtnivikan 2022 #samangegnsoun

Nú fer nýtnivikan 2022 að byrja ! Nýtnivikan verður dagana 19.-27. nóvember þannig að endilega gerið ykkur klár í slaginn #samangegnsoun.

Við hvetjum starfsfólk vinnustaða til þess að taka þátt í átakinu og vera með fataskiptimarkað í vinnunni. Til að sú frábæra hugmynd geti orðið að veruleika þá endilega hengið upp plakötin á kaffistofunni, komið af stað umræðu um málið og komið þessu skemmtilega verkefni á fótinn í vinnunni þar sem allir græða.

Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á heimsíðu saman gegn sóun, sjá HÉR, ásamt plakötum og leiðbeiningum sem varða málið.

Kíktu sérstaklega á þessa auglýsingu fyrir fatamarkað Fataskiptimarkaður í vinnunni og þetta hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan