Nýliðafræðsla 17. apríl 2013

17. apríl nk. verður boðið upp á þriggja tíma fræðslu fyrir nýtt starfsfólk hjá Akureyrarbæ.

Samkvæmt mannauðsstefnu Akureyrarbæjar á allt nýtt fastráðið starfsfólk að fara á nýliðanámskeið þar sem það er frætt um starfsemi og markmið Akureyrarbæjar ásamt réttindum sínum og skyldum.

Markmiðið með fræðslunni er að nýtt starfsfólk kynnist mismunandi starfsemi hjá bænum og fái innsýn inn í hin ýmsu mál sem snerta starfsmenn Akureyrarbæjar, bæði beint og óbeint.

Fastráðið starfsfólk sem unnið hefur skemur en eitt ár hjá Akureyrarbæ getur skráð sig á nýliðafræðsluna á starfsmannavef Akureyrarbæjar. Mikilvægt er þó að gera slíkt í samráði við yfirmann.

Hér má finna dagskrá nýliðafræðslunnar:

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan