Nýliðafræðsla 10. maí

10. maí nk. verður boðið upp á þriggja og hálfs tíma fræðslu fyrir nýtt starfsfólk hjá Akureyrarbæ.

Samkvæmt mannauðsstefnu Akureyrarbæjar á allt nýtt fastráðið starfsfólk að fara á nýliðafræðslu þar sem það er frætt um starfsemi og markmið Akureyrarbæjar ásamt réttindum sínum og skyldum.

Markmiðið með fræðslunni er að nýtt starfsfólk kynnist mismunandi starfsemi hjá bænum og fái innsýn inn í hin ýmsu mál sem snerta starfsmenn Akureyrarbæjar, bæði beint og óbeint.

Dagskrá nýliðafræðslunnar má finna hér.

Stjórendur sendi póst á almarun@akureyri.is fyrir 6. maí með nöfnum og kennitölum þess starfsfólks sem sækja mun námskeiðið frá þeirra stofnunum.

Athugið að starfsfólk sem starfað hefur hjá Akureyrarbær lengur en 3 mánuði og skemur en í 12 mánuði getur sjálft skráð sig á nýliðafræðsluna á starfsmannavefnum www.eg.akureyri.is/  Mikilvægt er þó að gera slíkt í samráði við yfirmann.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan