- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Samkvæmt Mannauðsstefnu Akureyrarbæjar á allt nýtt fastráðið starfsfólk að fara á nýliðanámskeið þar sem það er frætt um starfsemi og markmið Akureyrarbæjar ásamt réttindum sínum og skyldum.
Miðvikudaginn 2. október nk. verður boðið upp á fræðslu fyrir nýtt starfsfólk hjá Akureyrarbæ.
Markmiðið með fræðslunni er að nýtt starfsfólk kynnist mismunandi starfsemi hjá bænum og fái innsýn inn í hin ýmsu mál sem snerta starfsmenn Akureyrarbæjar, bæði beint og óbeint.
Fastráðið starfsfólk sem unnið hefur skemur en eitt ár hjá Akureyrarbæ getur skráð sig á nýliðafræðsluna á starfsmannavef Akureyrarbæjar. Mikilvægt er þó að gera slíkt í samráði við yfirmann.
Hér má finna dagskrá nýliðafræðslunnar: