Samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga hefur gefið út skýrslu um
efnahagsumhverfi og launaþróun í aðdraganda kjaraviðræðna. Að nefndinni standa fern samtök launafólks, þ.e. ASÍ, BHM, BSRB og
KÍ og af hálfu vinnuveitenda, SA, Samband íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Í skýrslunni koma fram upplýsingar um þróun launa á árunum 2006 til 2014 og ítarleg greining á helstu forsendum kjarasamninga.