NORAK 2016 - starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku

Mótanefnd NORAK og heilsuráð Akureyrarbæjar halda áfram að taka höndum saman og skipuleggja hið árlega starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku, NORAK 2016.

Mótið fer fram miðvikudaginn 7. september og verður ræst af 1. teig kl. 16:30. Hægt er að koma óskum um rástíma til mótsstjórnar (sjá nánar í auglýsingu).

Mótanefnd raðar í 3-manna lið eftir forgjöf og mótafyrirkomulagið gefur ÖLLUM færi á að vera með í mótinu, hvort sem menn og konur hafi forgjöf eður ei!

Skráningu lýkur föstudaginn 2. september. 

Áhugasamir og áhugaminni eru vinsamlegast beðnir um að lesa auglýsinguna vel og vandlega og hafa óhikað samband við Ellert Örn Erlingsson, forstöðumann íþróttamála ef tilefni er til.

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan