- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Niðurstöður starfsmannakönnunar um heilsu, líðan og starfstengd viðhorf starfsfólks hjá Akureyrarbæ liggja nú fyrir. Könnunin var lögð fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar í fjórða skiptið í febrúar sl. en áður var könnunin lögð fyrir vorið 2013 og veturna 2010 og 2011. Niðurstöðurnar voru kynntar fyrir stjórnendum deilda og stofnana bæjarins á sérstökum fundi þann 2. júní síðastliðinn en þeim er ætlað að miðla niðurstöðunum áfram til starfsfólks síns. Heildarskýrsla er tilbúin og er hún meðfylgjandi þessari frétt.
Könnunin er unnin í samstarfi við Hjördísi Sigursteinsdóttur aðjúnkt við Háskólann á Akureyri og náði til allra
starfsmanna Akureyrarbæjar í meira en 30% starfi.
Alls svöruðu 1160 starfsmenn. Svarhlutfallið var gott eða 69,3%. Niðurstöðurnar gefa þar af leiðandi nokkuð góða vísbendingu um hvernig
starfsfólki bæjarins líður í starfi.
Nær 80% þeirra sem tóku þátt í könnuninni eru konur sem er lítið eitt hærra hlutfall en hlutfall kvenna meðal starfsmanna bæjarins í heild þannig að konur voru heldur duglegri að svara en karlar.
Niðurstöður könnunarinnar eru þegar á heildina er litið góðar og virðist starfsfólk Akureyrarbæjar almennt ánægt í starfi. Niðurstöður gefa til kynna að 83% starfsmanna séu mjög eða frekar sammála fullyrðingunni „Þegar á heildina er litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu“. Auk þess telur meirihluti starfsmanna eða 83,27% góðan starfsanda ríkja á vinnustaðnum fremur oft, mjög oft eða alltaf sem er hærra hlutfall en í könnuninni 2013.
Starfsfólki sem farið hefur í formlegt starfsmannasamtal á undanförnum tveimur árum hefur fækkað lítillega frá síðustu könnun. Nú segjast 66,48% hafa farið í slíkt samtal einu sinni eða oftar en í síðustu könnun voru þeir 70,9%.
Stofnaður hefur verið starfshópur sem rýna mun niðurstöður könnunarinnar og gera tillögur um aðgerðir.
Í heildarskýrslu könnunarinnar má finna allar frekari upplýsingar. Niðurstöður könnunarinnar og skýrslur fyrri ára má finna hér.