Niðurstöður starfsmannakönnunar 2011

Niðurstöður starfsmannakönnunar um heilsu, líðan og starfstengd viðhorf starfsfólks hjá Akureyrarbæ liggja nú fyrir. Könnunin var lögð fyrir starfsmenn Akureyrarbæjar í annað skiptið sl. vor en áður var könnunin lögð fyrir veturinn 2010. Niðurstöðurnar voru kynntar fyrir stjórnendum deilda og stofnana bæjarins á sérstökum fundi  þann 7. desember  síðastliðinn en það er þeirra verkefni að miðla niðurstöðunum áfram til starfsfólks síns.  Heildarskýrsla er tilbúin og er hún meðfylgjandi þessari frétt.

Könnunin er liður í doktorsverkefni Hjördísar Sigursteinsdóttur í félagsfræði við Háskóla Íslands og verður hún framkvæmd alls þrisvar sinnum. Næst verður hún lögð fyrir haustið 2012.

Könnunin náði til allra starfsmanna Akureyrarbæjar í meira en 30% starfi og alls svöruðu 1054 starfsmenn könnuninni. Svarhlutfallið var gott eða 68% sem er betri svörun en í síðustu könnun en þá var svarhlutfallið 64%. Niðurstöðurnar gefa þar af leiðandi góða vísbendingu um hvernig starfsfólki bæjarins líður í starfi.

Nær 80% þeirra sem tóku þátt í könnuninni eru konur sem er lítið eitt hærra hlutfall en hlutfall kvenna meðal starfsmanna bæjarins í heild þannig að konur voru heldur duglegri að svara en karlar. En það er ljóst að Akureyrarbær er mikill kvennavinnustaður þegar á heildina er litið en um 73% allra starfsmanna sveitarfélagsins eru konur. Um 65% svarenda hafði starfað lengur en 5 ár hjá Akureyrarbæ þannig að óhætt er að segja að starfsmannavelta hjá bænum sé lítil sem bendir til að starfsfólk sé almennt ánægt í starfi.

Niðurstöður könnunarinnar eru þegar á heildina er litið ánægjulegar og virðist starfsfólk Akureyrarbæjar almennt ánægt í starfi. Niðurstöður gefa til kynna að 85,8% starfsmanna sé mjög eða frekar sammála fullyrðingunni „Þegar á heildina er litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu“. Stærsti hluti starfsmanna eða 70,9% er ánægður með stjórnun vinnustaðarins þannig að þessir starfsmenn segjast vera mjög oft eða alltaf ánægðir með stjórnunina.

Ánægjulegt er að starfsfólki sem farið hefur í formlegt starfsmannasamtal á undanförnum tveimur árum hefur fjölgað frá síðustu könnun. Nú segjast 70,7% hafa farið í slíkt samtal einu sinni eða oftar en í síðustu könnun voru þeir 65,7%. Átak sem farið var í á vinnustöðum bæjarins síðastliðinn vetur og miðaði að því að hvetja til starfsmannasamtala hefur því skilað töluverðum árangri.

Einnig er ánægjulegt að mun fleiri starfsmenn nú hafa varið 20 klst. eða meira í sí- og endurmenntun á sl. tveimur árum, hlutfallið var 47,3% árið 2010 en er nú 53,3%.

Í heildarskýrslu könnunarinnar má finna allar frekari upplýsingar.

Skýrsluna má finna hér.

Viðauka má finna hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan