Námskeið um vellíðan á vinnustað

Síðastliðinn vetur stóð vinnustöðum Akureyrarbæjar til boða námskeið á vegum innanhússfræðara þar sem fjallað var um líðan starfsfólks á vinnustað.

Frá því í ágúst 2013 hafa verið haldin 48 námskeið á vinnustöðum bæjarins við góðar undirtektir. 

Innanhúsfræðarar eru 13 manna hópur starfsmanna Akureyrarbæjar sem hefur fengið þjálfun í aðferðum til að virkja þátttakendur til að ræða mál, forgangsraða og taka afstöðu. Tveir eða fleiri leiðbeinendur úr hópnum stýrðu hverju námskeiði en hvert námskeið var 1 –  2,5  klukkutími að lengd, eftir eðli þeirra og stærð starfsmannahópa.

Markmið námskeiðanna var að fjalla um og ræða vellíðan á vinnustað, samskipti, virðingu og umburðarlyndi. Hér eru dæmi um spurningar sem ræddar voru á námskeiðunum:

  • Hvað einkennir góða endurgjöf og af hverju hún er mikilvæg? 
  • Hvað gerir vinnustað eftirsóknarverðan?
  • Hvað einkennir góðan samstarfsmann?
  • Hverjar eru birtingarmyndir og afleiðingar eineltis á vinnustað? 

Næsta vetur verður aftur boðið upp á námskeið á vegum innanhússfræðara.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan