Námskeið: Samskipti á vinnustöðum

Föstudaginn 23. nóvember frá kl. 12-16 mun Rakel Heiðmarsdóttir halda námskeið í SÍMEY um samskipti á vinnustöðum.

Námskeiðið hefur fengið afar góðar viðtökur og er þetta í annað sinn sem námskeiðið verður haldið nú í haust.
Athugið að sjóðir stéttarfélaga greiða fyrir starfsmenn, sem eru félagsmenn í aðildarfélögum Starfsmenntar og þeim félögum sem hafa gert samstarfssamning við Starfsmennt í gegnum mannauðssjóði. Þetta á t.a.m. við um félagsmenn SFR, Kjöl og starfsmenn ríkis og sveitarfélaga í Einingu Iðju. Nánari upplýsingar um aðildarfélög Starfsmenntar má finna hér. 


Skráning fer fram á heimasíðu Starfsmenntar og frekari upplýsingar um námskeiðið er að finna á vef SÍMEY.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan