- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Margrét Alfreðsdóttir lét af störfum sem skrifstofustjóri búsetudeildar Akureyrarbæjar þann 1. júní síðastliðinn. Margrét vann við þennan málaflokk í 42 ár, fyrst hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðs fólks og síðan hjá búsetudeild. Hún hefur ávallt sinnt starfi sínu af mikilli trúmennsku og heilindum ásamt því að vera starfsfólki deildarinnar ómetanlegur vinnufélagi og vinur.