Mannauðsmoli - Félagslegt og andlegt vinnuumhverfi

Samspil vinnuumhverfis og heilbrigðis er flókið. Vinnustaðurinn er samsettur af ytri og innri aðstæðum þar sem allt hefur áhrif á líðan starfsfólks. Áður fyrr beindist vinnuverndarstarf helst að því að koma í veg fyrir slys og líkamlegt heilsutjón vegna vinnunnar. Í dag hafa augu opnast fyrir því að félagslegt og andlegt starfsumhverfi er jafn mikilvægt. Ef félagslegt og andlegt vinnuumhverfi er ekki gott getur það leitt til verri afkasta, slysa og fjarvista sem hefur mikil áhrif á afkomu fyrirtækja.

Vinnueftirlitið gaf út bækling um félagslegt og andlegt vinnuumhverfi sem er ætlað að vekja stjórnendur og starfsfólk fyrirtækja til umhugsunar um nokkur lykilatriði sem stuðla að góðu félagslegu og andlegu vinnuumhverfi.
Í bæklingnum er fjallað um: Stjórnun og skipulag, fjölbreytni, sjálfræði, sveigjanleika, hæfilegar kröfur, upplýsingar og samskipti, einelti, stuðning og heilsueflingu.

Í bæklingnum er stuttlega farið yfir hvern málaflokk og settar fram spurningar eða fullyrðingar til umhugsunar. Öll fyrirtæki eiga að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað (áhættumat) ásamt áætlun um heilsuvernd og forvarnir sbr. reglugerð um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum nr. 920/2006. Fyrirtæki eiga það til að sleppa því að vinna með félagslegt og andlegt vinnuumhverfi en sá flokkur er ekki síður mikilvægur.

Hægt er að skoða bækling Vinnueftirlitsins hér.

(Heimild: Heimasíða Vinnueftirlitsins)

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan