- Starfsmannahandbók
- Kjaramál
- Skjalakerfi og tölvumál
- Tilboð og afslættir
- Ritstjórn
Frá og með 1. maí 2016 verður eingöngu hægt að nálgast launaseðla hjá Akureyrarbæ rafrænt á starfsmannavef bæjarins www.eg.akureyri.is.
Með þessari umhverfisvænu aðgerð dregur Akureyrarbær verulega úr pappírsnotkun og sparar einnig töluverða fjármuni í pappírs- og sendingarkostnaði.
Sækja þarf um lykilorð á slóðina www.eg.akureyri.is sem síðan er sent í heimabanka viðkomandi starfsmanns. Hafi starfsmaður ekki aðgang að heimabanka getur viðkomandi nálgast lykilorðið í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar.
Leiðbeiningar fyrir starfsmannavefinn má finna HÉR
Þjónustuanddyri Akureyrarbæjar svarar fyrirspurnum um aðgang að starfsmannavef í tölvupósti; lykilord@akureyri.is eða í síma 460 1000.
Starfsfólk er hvatt til þess að nýta starfsmannavefinn, þar er að finna ýmsar upplýsingar auk rafrænna launaseðla, s.s. upplýsingar um orlof, veikindadaga og reikninga frá Akureyrarbæ.