Launamiðar komnir á www.eg.akureyri.is

Frá 1. febrúar 2014 eru launamiðar vegna ársins 2013 aðgengilegir á starfsmannavefnum www.eg.akureyri.is. Fjárhæðir af launamiðum verða forskráðar á launaframtal eins og verið hefur.

Minnt er á að starfsmenn geta einnig skoðað launaseðlana sína á starfsmannavefnum.

Mikil áhersla er lögð á að minnka pappírsnotkun og viljum við hvetja alla til að nýta sér starfsmannavefinn og afþakka launaseðla á pappír með því að tilkynna það til Starfsmannaþjónustu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan