Launaleiðréttingar vegna nýrra kjarasamninga

Kjarasamningar Einingar-Iðju, Kjalar og SFR voru samþykktir í lok júlí. Í útborgun 1. september verða laun leiðrétt frá 1. maí. 

Kjarasamningar Leikskólakennara, Verk- og Tæknifræðinga og Byggingafræðinga voru samþykktir í byrjun júlí. Leiðréttingar koma til framkvæmda 1. ágúst.

Þann 1. ágúst verða gerðar leiðréttingar á launum fyrirframgreiddra grunnskólakennara sem hafa afsalað sér kennsluafslætti. Breytingin kemur til framkvæmda í útborgun 1. september hjá þeim sem fá eftirágreidd laun.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan